Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Líkamsæfingar fyrir fólk á besta aldri

14.08.2019

ÍSÍ leggur áherslu á málaflokka tengdum heilsu og fræðslu, t.d. með almennu fræðslustarfi um gildi hreyfingar. Eitt af áhersluatriðum íþróttahreyfingarinnar er íþróttastarf og hreyfing eldri borgara. Árið 2005 var stofnuð nefnd innan ÍSÍ sem ber heitið Nefnd um íþróttir 60+. Markmiðið með nefndinni er að efla íþróttastarf eldri borgara, vinna að fræðslumálum og standa fyrir átaksverkefnum eftir atvikum. 

Fræðslubæklingurinn „Líkamsæfingar fyrir fólk á besta aldri“, sem nálgast má hér, er gefinn út sem hvatning til fólks um að stunda reglulega líkamsrækt. Þar er að finna fjölbreyttar æfingar sem allir ættu að geta stundað daglega. Meðal æfinga eru ganga, æfingar í vatni, æfingar fyrir háls og herðar, bak og kvið, fætur og arma. Fróðleikur um gildi líkamsræktar fyrir heilsuna er settur fram og sömuleiðis holl ráð um næringu, svefn, slökun, vernd gegn beinþynningu og fleira. Hægt er að nálgast eintak af bæklingnum á skrifstofu ÍSÍ endurgjaldslaust.