Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ

20.09.2019

Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 23. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda, almennan hluta hjá ÍSÍ og sérgreinahluta hjá sérsamböndum ÍSÍ.

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og kr. 40.000.- á 3. stig. öll námskeiðsgögn eru innifalin.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið í dag, föstudaginn 20. sept. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari. Til þátttöku á 3. stigi þarf að hafa lokið 2. stigi eða sambærilegu námi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og að hafa 18 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Slóð á skráningu á öll stig í haustfjarnámi Þjálfaramenntunar ÍSÍ 2019.

Allar nánari upplýsingar um Þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 og 863-1399 eða á vidar@isi.is