Dagur í lífi hjólreiðameistarans Ágústu Eddu
Ágústa Edda Björnsdóttir, hjólreiðakona og margfaldur meistari í greininni, ætlar að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf nk. fimmtudag, 21. nóvember. Ágústa Edda mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.
Ágústa Edda Björnsdóttir, hjólreiðakona og fyrst íslenskra kvenna til að taka þátt í heimsmeistaramóti í hjólreiðum
Ágústa Edda hefur verið í íþróttum frá unga aldri. Íþróttaferillinn byjaði í fimleikum, síðan tók handbolti við og nú stundar hún hjólreiðar af kappi. Ágústa Edda er margfaldur meistari í bæði götuhjólreiðum og fjallahjólreiðum. Hún varð fyrr á árinu fyrst íslenskra kvenna til að taka þátt á heimsmeistaramóti í hjólreiðum og fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í heimsmeistaramóti í götuhjólreiðum. Ágústa Edda var valin Hjólreiðakona ársins 2017, 2018 og 2019.
Þeir sem vilja fylgjast með íslensku afreksíþróttafólki æfa, keppa og takast á við hversdagsleikann geta fylgt Instagram síðu ÍSÍ og fengið upplifunina beint í símann.