Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
21

Lífshlaupið 2020 - Hefst 5. febrúar

16.01.2020

Nú styttist í að nýtt lífshlaupsár hefjist, þann 5. febrúar. Opnað verður fyrir skráningu þann 22. janúar á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Á síðasta ári voru um 17 þúsund virkir þátttakendur í samtals um 500 skólum og vinnustöðum. Verkefnið miðar að því að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er. Lífhlaupið er góð byrjun á hreyfingu fyrir lífstíð.

Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu:

  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar.
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar.
  • Vinnustaðakeppni í þrjár vikur, 5. - 25. febrúar.
  • Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.