Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

ÍSÍ úthlutar tæplega 462 m.kr. í afreksstyrki

10.02.2020

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2020, en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema tæplega 462 milljónum króna.

Til Afrekssjóðs ÍSÍ bárust að þessu sinni umsóknir frá 30 sérsamböndum. Hljóta öll þessi sérsambönd styrk vegna sinna landsliðsverkefna, þótt um misháar upphæðir sé að ræða.  Þrátt fyrir að úthlutað sé að þessu sinni tæplega 462 milljónum króna, sem er svipuð upphæð og á síðasta ári er enn töluvert í að styrkir ÍSÍ standi undir öllu afreksíþróttastarfi sérsambanda. Heildarkostnaður afreksíþróttastarfs hjá þeim sérsamböndum sem sóttu um til Afrekssjóðs ÍSÍ vegna ársins 2020 nema um 1.563 m.kr. og er stuðningur sjóðsins því að meðaltali tæplega 30% af þörf sérsambanda, en þess má þó geta að árið 2016 var hlutfallið um 11%.

Framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ hefur þannig hækkað mikið á undanförnum árum og er fyrir þetta ár 400 m.kr. sem er sama upphæð og var fyrir árið 2019 en þá hafði framlagið hækkað árlega um 100 m.kr. frá 2016. Afrekssjóður ÍSÍ er annars fjármagnaður með hlutdeild úr tekjum íþróttahreyfingarinnar frá Íslenskri Getspá samkvæmt ákvörðun Íþróttaþings ÍSÍ. 

Unnið hefur verið eftir sama vinnulagi og á síðastu tveimur árum, en þá var nýtt ferli tekið upp hjá Afrekssjóði ÍSÍ vegna styrkjaumsókna og meðhöndlun þeirra. Fulltrúar Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ hafa fundað með sérsamböndum og aðstoðað þau við að móta umsóknir og fylla inn upplýsingar samkvæmt þeim ramma sem stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ hefur samþykkt og kynntur hefur verið fyrir sérsamböndum ÍSÍ.

Sérsambönd eru flokkuð í þrjá afreksflokka, þ.e. A/Afrekssérsambönd, B/Alþjóðleg sérsambönd og C/Þróunarsérsambönd. Við ákvörðun á styrkupphæðum til sérsambanda er fyrst horft til flokkunar þeirra í afreksflokka. Eftir því hvaða flokki þau tilheyra er heimilt að veita þeim styrk vegna ákveðna málaflokka. Þannig hljóta sérsambönd grunnstyrk sem er mishár eftir flokki, styrk vegna þátttöku í HM/EM, styrk vegna hæfileikamótunar, vegna heilbrigðisteymis og vegna menntunar afreksþjálfara/landsliðsþjálfara. Í flokki A og B sérsambanda eru síðan fleiri flokkar sem eru styrktir, s.s. vegna verkefna alþjóðlegra dómara, verkefna yngri liða/einstaklinga, vegna Ólympíuundirbúnings og vegna einstaklinga. Það sem greinir samt helst á milli sambanda varðandi upphæðir er umfang þess afreksstarfs sem á sér stað hjá sambandinu. Þannig skila öll sérsambönd inn áætlun um verkefni ársins og fjölda þátttakenda og lengd verkefnis. Hvert mót fær ákveðinn stuðul eftir vægi mótsins samkvæmt skilgreiningu sérsambands sem uppfærð hefur verið á árinu 2019. Úr þessum gögnum verður til mismunandi stigafjöldi fyrir hvert sérsamband og fær sambandið úthlutað hluta af styrknum samkvæmt þeim stigafjölda sem það mælist með.

Áhersluþættir sjóðsins sjást í úthlutun til sérsambanda og hvernig einstaka þættir eru styrktir. Fyrir árið 2020 er hlutfall styrkja í flokki svonefndra fastra styrkja 55,06% af heildarúthlutun, en var fyrir árið 2019 50,5%. Hlutfall breytilegra styrkja hefur lækkað í öllum flokkum í samanburði við síðasta ár, sem gefur til kynna að sérsambönd eru með áherslur í takt við tillögu sjóðsins. Þessi breyting hefur áhrif á úthlutun til þeirra sérsambanda sem hafa fengið stóran hluta af breytilegum styrkjum sjóðsins.  

 

Hlutfall á milli afreksflokka hefur einnig tekið breytingum en hafa ber í huga að á árinu 2019 voru gerðar tvær breytingar á flokkun sérsambanda í flokka, þ.e. Skíðasamband Íslands var fært úr B-flokki í A-flokk og Landssamband hestamannafélaga var fært úr C-flokki í B-flokk. Þá hafa þrjú sérsambönd sótt um styrki í fyrsta skipti til sjóðsins, þ.e. fyrir verkefni ársins 2020. Aukinn fjöldi sérsambanda og færslur á milli flokka hafa áhrif á úthlutun til annarra og þótt að slíkt hafi átt sér stað áður þá gerði aukning á framlagi ríkisins til sjóðsins mögulegt að bregðast við slíkum breytingum án þess að það þyrfti að koma til lækkunar á styrkveitingum til einstakra sérsambanda. Fyrir árið 2020 er ljóst að fjölmörg sérsambönd lækka í upphæðum á milli ára og eru það helst sérsambönd sem voru með töluvert minna umfang á árinu 2019 í samanburði við komandi ár sem hækka á milli ára.

Í reglugerð Afrekssjóðs ÍSÍ er fjallað um kröfur um afreksstefnur sérsambanda sem uppfylla viðmið ÍSÍ. Þannig er lögð áhersla á að öll sérsambönd móti sér stefnu í afreksíþróttum sem hljóti umfjöllun og samþykki á sérsambandsþingi. Mismunandi kröfur eru þó gerðar til sérsambanda eftir afreksflokkum þeirra.  

Á árinu eru margir stórviðburðir á dagskrá eins og EM í handknattleik karla sem var í upphafi árs og Ólympíuleikar og Ólympíumót fatlaðra í Tókýó. Vorið framundan er mjög mikilvægt keppendum í íþróttagreinum þar sem lágmörk og staða á heimslista ræður því hverjir vinna sér inn keppnisrétt á leikana í Tókýó og verður spennandi að fylgjast með árangri íslenskra keppenda á næstu misserum.

Í þessum tölum er verið að tala um heildarúthlutun til viðkomandi sérsambands og er nánari útfærsla skilgreind í samningum sem gerðir verða við sérsambönd á næstunni.

Áherslur ÍSÍ varðandi afreksstyrki mótast af Afreksstefnu ÍSÍ þar sem segir:

„Meginhlutverk Afrekssjóðs ÍSÍ í uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi er að styðja sérsambönd fjárhagslega og þar með íslenskt afreksíþróttafólk við að ná árangri í alþjóðlegri keppni. Forsenda styrkveitinga er að sérsambönd hafi markvissa og raunhæfa afreksstefnu, ásamt aðgerðaráætlun. Stuðningur sjóðsins felst í fjárframlögum vegna verkefna sem skulu vera fyrirfram skilgreind í aðgerðaráætlun viðkomandi sérsambands.”

Vonir standa til þess að frekari styrkjum verði úthlutað á árinu 2020 og mun stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ fylgjast náið með framvindu og árangri. Er þar m.a. verið að horfa til Ólympíuleika í Tókýó 2020 og þeirra sambanda og íþróttamanna sem stefna að þátttöku á leikunum og eiga þess kost að vinna sér inn keppnisrétt.

Frekari upplýsingar um starfsemi Afrekssjóðs ÍSÍ og úthlutanir má finna á heimasíðu sjóðsins.

Úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ til sérsambanda 2020

Flokkun

Sérsambönd

Upphæð

A

HSÍ – Handknattleikssamband Íslands

58.300.000

FSÍ – Fimleikasamband Íslands

52.800.000

SSÍ – Sundsamband Íslands

37.650.000

GSÍ – Golfsamband Íslands

35.900.000

KKÍ – Körfuknattleikssamband Íslands

35.600.000

FRÍ – Frjálsíþróttasamband Íslands

35.300.000

SKÍ – Skíðasamband Íslands

32.600.000

ÍF – Íþróttasamband fatlaðra

32.550.000

B

KRA – Kraftlyftingasamband Íslands

15.000.000

BSÍ – Badmintonsamband Íslands

12.100.000

ÍHÍ – Íshokkísamband Íslands

12.000.000

JSÍ – Júdósamband Íslands

10.550.000

SKY – Skylmingasamband Íslands

10.500.000

BLÍ – Blaksamband Íslands

10.400.000

DSÍ – Dansíþróttasamband Íslands

10.250.000

STÍ – Skotíþróttasamband Íslands

9.750.000

KLÍ – Keilusamband Íslands

9.217.500

LH – Landssamband hestamannafélaga

8.800.000

KAÍ – Karatesamband Íslands

7.025.000

C

LSÍ – Lyftingasamband Íslands

3.800.000

ÞRÍ – Þríþrautarsamband Íslands

3.205.000

TKÍ – Taekwondósamband Íslands

2.787.500

BFSÍ – Bogfimisamband Íslands

2.300.000

TSÍ – Tennissamband Íslands

2.300.000

BTÍ – Borðtennissamband Íslands

2.300.000

HRÍ – Hjólreiðasamband Íslands

2.100.000

ÍSS – Skautasamband Íslands

2.000.000

SÍL – Siglingasamband Íslands

1.750.000

MSÍ – Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands

1.650.000

HNÍ – Hnefaleikasamband Íslands

1.450.000

Alls

 

461.935.000