Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14.04.2026 - 14.04.2026

Ársþing ÍA 2026

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
12

Hert samkomubann tekur gildi á miðnætti

23.03.2020

Heilbrigðisráðherra kynnti í gær að á miðnætti í dag, þann 23. mars kl. 24:00 tekur í gildi hert samkomubann. 

Það þýðir að allar samkomur eru takmarkaðar við 20 manns hvort heldur er í opinberum rýmum eða einkarýmum og jafnframt er krafa um að tveggja metra fjarlægðarviðmiðinu sé framfylgt. Hreinlæti og sóttvörnum skal fylgt eftir sem áður.

Hér er að finna fyrirmælin í heild sinni, vinsamlegast kynnið ykkur þau vel. 

Hér er að finna leiðbeiningar fyrir áhættuhópa og einstaklinga sem eru í umgengni við þá sem teljast í áhættuhópi.

Bæði skjölin er að finna á www.covid.is á íslensku, ensku og pólsku.

ÍSÍ hvetur alla til að kynna sér það efni sem er að finna á vefsíðu Embættis landlæknis www.landlaeknir.is og fylgjast náið með gangi mála.