Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Skráðu þína hreyfingu á vefsíðu Lífshlaupsins

26.03.2020

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk til að huga vel að almennri hreyfingu í þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna Covid-19. ÍSÍ bendir á verkefnið Lífshlaupið sem er í gangi allt árið, en það er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa og allra landsmanna. 

Skrá má alla hreyfingu en samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis er fullorðnum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 30 mínútur á dag og börnum og unglingum í minnst 60 mínútur á dag. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn. Einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Vefsíða Lífshlaupsins