Dagur í lífi fimleikamanns
11.07.2020
Nonni er líka sirkuslistamaður sem sérhæfir sig í handstöðulist, akróbatík og loftfimleikum. Hann er einn af meðlimum sirkuslistafélagsins Hringleiks en síðustu sex ár hefur hann sýnt listir sínar með Sirkus Íslands að hálfu ári undanskildu þegar hann bjó á Nýja Sjálandi og sýndi þá með Circus Aotearoa. Nonna er margt til lista lagt og verður spennandi að sjá hvernig dagur í lífi þessa glæsilega íþróttamanns er.
Jón Sigurður Gunnarsson, landsliðsmaður í fimleikum og margfaldur Íslandsmeistari tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ nk. mánudag 13. júlí.
Jón, eða Nonni eins og hann er alltaf kallaður, hefur stundað fimleika í 22 ár með Ármanni og verið í landsliði Íslands í áratug. Hann er margfaldur Íslandsmeistari á einstökum áhöldum og var Íslandsmeistari í fjölþraut 2016. Auk þess hefur hann náð góðum árangri á Norðurlandamótum síðustu ára og unnið til silfurverðlauna á hringjum. Árið 2013 varð hann Íslandsmeistari í kraftlyftingum í sínum þyngdarflokki og setti þá Íslandsmet í bekkpressu sem stendur enn.Nonni er líka sirkuslistamaður sem sérhæfir sig í handstöðulist, akróbatík og loftfimleikum. Hann er einn af meðlimum sirkuslistafélagsins Hringleiks en síðustu sex ár hefur hann sýnt listir sínar með Sirkus Íslands að hálfu ári undanskildu þegar hann bjó á Nýja Sjálandi og sýndi þá með Circus Aotearoa. Nonna er margt til lista lagt og verður spennandi að sjá hvernig dagur í lífi þessa glæsilega íþróttamanns er.