Dagur í lífi badmintonkonu
14.09.2020
Arna Karen Jóhannsdóttir, landsliðskona í badminton, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ á morgun, þriðjudag. Arna Karen hefur verið ein af okkar fremsta badmintonfólki síðustu ár þar sem hún hefur spilað lykilhlutverk í bæði unglinga- og fullorðinslandsliðum Íslands. Síðustu tvö ár hefur hún spilað í Danmörku og vann nýlega það afrek að vera valin badmintonkona ársins hjá klúbbnum sínum, Ikast FS. Nú er Arna Karen að byrja sitt þriðja tímabil í Danmörku, auk þess sem hún var að hefja nám í íþróttafræði við háskólann í Árósum.
Fylgstu með degi í lífi badmintonkonunnar Örnu Karenar á Instagrami ÍSÍ.