Sérstök aðgát í íþróttahúsum í eigu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
![](/library/Skrar/Um-iSi/Covid-19-og-ithrottahreyfingin/%c3%8d%c3%ber%c3%b3ttahreyfingin%20og%20covid.jpg?proc=400x400)
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hefur sent tilmæli er eiga við um íþróttahús í eigu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Tilmælin gilda til 12. október.
- Mælst er til þess að foreldrar og forráðamenn séu ekki viðstaddir æfingar og frístundastarf barna og komi ekki inn í íþróttasal meðan á æfingum stendur.
- Hafi börn ekki þroska eða aldur til að vera ein í íþróttatíma t.d. íþróttaskóla barna þá fellur sá tími niður.
- Foreldrar og forráðamenn fylgi fyrirmælum um innkomu inn í íþróttasalina.
- Starfsemi sem ekki tilheyrir ÍSÍ og þeirra reglum um sóttvarnir og skipan sóttvarnarfulltrúa er ekki heimil.
Markmið tilmæla almannavarnarnefndar er að tryggja að starfsemi í íþrótta- og tómstundastarfi raskist sem minnst. Tilmælin má sjá í heild sinni hér.