Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ - Valgarð Reinhardsson

29.01.2021

Valgarð Reinhardsson, afreksmaður í fimleikum, er áttundi gestur Verum hraust - Hlaðvarps ÍSÍ.

Valgarð er margfaldur Íslandsmeistari í fimleikum og lykilmaður í landsliði Íslands undanfarin ár. Hann hefur keppt með góðum árangri á alþjóðlegum mótum eins og Evrópu- og heimsmeistaramótum, Norðurlandamótum og Smáþjóðaleikum. Valgarð stefnir á að komast á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 og er á fullu að undirbúa sig fyrir það ásamt því að stunda nám við Háskólann í Reykjavík.

Í viðtalinu sem er tekið af Kristínu Birnu Ólafsdóttur talar Valgarð um fimleikana, æfingar og keppnir hérlendis og erlendis sem og ýmsar áskoranir sem fylgja því að æfa og keppa á alþjóðavettvangi.

Viðtalið má sjá hér á Youtube-síðu ÍSÍ.

Verum hraust – Hlaðvarp ÍSÍ er aðgengilegt á öllum helstu veitum, Spotify og Apple iTunes. Einnig má hlusta á viðtalið hér fyrir neðan.