Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Sóttvarnareglur uppfærðar

17.03.2021

Búið er að uppfæra sóttvarnareglur sem gilda nú til 9. apríl 2021. Engar tilslakanir voru gerðar að þessu sinni en hert var á reglum er varða veitingasölu. Nú má einungis selja veitingar fyrir íþróttaviðburð en ekki á meðan viðburður stendur yfir eða í hléi. Einnig var skerpt á reglunum þegar kemur að blöndun hópa:

  • Skipuleggjendum íþróttaviðburða er skylt að tryggja þegar áhorfendur eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 50 manns og að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila. Þrátt fyrir að heimilt sé að hafa hlé á íþróttaviðburðum skal biðja gesti um að halda kyrru fyrir í sætum sínum.
  • Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun milli hólfa. Við skipulag á íþróttaviðburðum ber að fylgja leiðbeiningum um rými frá embætti landlæknis. Sjá leiðbeiningar frá embætti landlæknis hér.

Reglur sérsambanda vegna COVID-19 má finna hér en mjög mikilvægt er að reglum sé fylgt í hvívetna bæði á æfingum og í keppni.