Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ
12.05.2021
Í hlaðvarpi ÍSÍ - Verum hraust má hlusta á samtöl við besta íþróttafólk og þjálfara Íslands sem deila sinni sögu og leyfa hlustanda að kynnast þjálfuninni og hugarfarinu sem þarf til að ná árangri á stærstu íþróttasviðum jarðar: Ólympíuleikum og heimsmeistaramótum.
Guðni Valur Guðnason var nýlega í skemmtilegu viðtali í hlaðvarpinu en hann vann einmitt til silfurverðlauna í kringlukasti á stórmóti í Split um síðastliðna helgi. Hægt að smella hér til að horfa á viðtalið við Guðna Val í heild sinni en það viðtal og fleiri skemmtileg viðtöl hlaðvarpsins er að finna á öllum helstu veitum, Spotify og Apple iTunes.