Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Tveir íslenskir fimleikadómarar dæma á ÓL í Tókýó

05.07.2021

 

Tveir íslenskir dómarar hafa verið valdir af Alþjóðafimleikasambandinu til að dæma í áhaldafimleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó. Það eru þau Björn Magnús Tómasson og Hlín Bjarnadóttir sem bæði eru reynslumiklir dómarar og hafa dæmt á fjölmörgum stórmótum, s.s. Ólympíuleikum. Það er frábær árangur að ná tveimur dómurum inn á leika sem þessa enda gríðarleg samkeppni um dómarastöðurnar og sýnir val Alþjóðafimleikasambandsins hversu vel Björn Magnús og Hlín eru metin innan fimleikahreyfingarinnar.

ÍSÍ óskar þeim báðum góðs gengis í störfum sínum í Tókýó og óskar þeim jafnframt til hamingju með valið.