Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

ÍSÍ fundar með KSÍ

30.08.2021

Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í dag var forseta ÍSÍ falið að eiga fund með forsvarsmönnum Knattspyrnusambands Íslands um þá stöðu sem upp er komin í sambandinu og nauðsynlegar aðgerðir til úrbóta. Fundurinn mun fara fram seinna í dag eða á morgun.

ÍSÍ og samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála hafa, ásamt fleiri aðilum er koma að íþrótta- og æskulýðsstarfi í landinu, unnið saman undanfarna mánuði að uppfærslu verkferla og viðbragðsáætlana fyrir íþróttahreyfinguna. ÍSÍ fundaði í dag með samskiptaráðgjafa um stöðu verkefnisins.