Verkefni 5 C´s hleypt af stokkunum
Verkefnið 5C´s sem hlotið hefur 30 milljón króna styrk úr styrkjaáætlun Evrópusambandsins Erasmus+ var opinberlega hleypt af stokkunum í síðustu viku, með fundahaldi og námskeiði. Að verkefninu standa ÍSÍ, UMFÍ, Knattspyrnusamband Íslands, Fimleikasamband Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Loughborough háskóli í Englandi. Tvö félög/deildir áttu fulltrúa á námskeiðinu, fimleikadeild Ármanns og knattspyrnudeild Fylkis. Bæði starfsmenn félaganna og þjálfarar koma að verkefninu, ásamt rannsóknarteymi háskólanna og starfsmönnum sem vinna að þessu verkefni.
Verkefnið snýst um að þjálfa fimm þætti í sálrænni og félagslegri færni barna og unglinga í íþróttum, rétt eins og þá líkamlegu. Þessir þættir eru skuldbinding, samskipti, sjálfstraust, sjálfsagi og einbeiting. Höfundur verkefnisins er Dr Chris Harwood prófessor við Loughborough háskóla en hann hefur unnið með íþróttafélögum að því að byggja upp andlega og félagslega færni hjá ungu íþróttafólki og byggja upp jákvæða íþróttamenningu. Harwood starfaði um tíma sem sálfræðingur hjá liðum yngri flokka í breska fótboltanum. Þá komst hann að því að þjálfarar einbeittu sér sjaldnast að þjálfun sálfræðilegrar og félagslegrar færni. „Einblínt var á tæknilega og líkamlega færni en ekki á sálfræðilega og félagslega færni. Mér þótti mikilvægt að tryggja að athyglin myndi beinast að þessum þáttum. Þetta er eitthvað sem hjálpar þeim ekki einungis í íþróttunum heldur líka í lífinu öllu,“ segir Harwood. „Við vinnum með þjálfurum til þess að hjálpa þeim að skilja hvað hvert C þýðir og hvernig mikil færni í hverju atriði lítur út. Þeir geta svo unnið með það lengra, á æfingum, í leikjum og í samskiptum. Þjálfararnir verða að vinna með hugmyndafræðina á sínum forsendum, eftir sinni menningu. Þjálfararnir hér á Íslandi þekkja menninguna hér til dæmis miklu betur en ég.“ Markmiðið er einnig að gera íþróttafólkinu sjálfu ljóst hvernig félagsleg og andleg færni lítur út og hvernig er hægt að bæta sig í henni og setja sér markmið þar að lútandi. „Þegar þeir gera sér grein fyrir því geta þeir haldið áfram að vinna í því að styrkja þessa kosti sína,“ segir Harwood.
Vinnustofan var haldin í Háskólanum í Reykjavík og var markmið hennar að auka þekkingu þjálfara á því hvernig stuðla megi að samþættingu sálfélagslegra þátta í þjálfun og undirbúa þjálfarana fyrir verkefnin sem framundan eru. Ítarleg rannsóknarvinna á áhrifum verkefnisins á iðkendur og þjálfara er í höndum fræðimanna frá Háskólanum í Reykjavík og Loughborough háskóla. Lykilmarkmið verkefnisins er að skoða hvort að þessi íhlutun hafi jákvæð áhrif á sálfélagslega færni iðkenda. Hugmyndafræði 5C´s svipar að mörgu leyti til verkefnis UMFÍ og ÍSÍ, Sýnum karakter.