Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

500 manna samkomutakmarkanir og skráningarskylda tekin upp að nýju

09.11.2021

Miðvikudaginn 10 nóvember tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem mun gilda til og með 8. desember. Hér að neðan má sjá helstu reglur er snerta íþróttahreyfinguna. 

Æfingar og keppnir: 

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 2.000 í 500 manns og heimilt verður að hafa allt að 500 manns á æfingum og í keppnum.
  • Sem fyrr skal sótthreinsa áhöld og aðra sameiginlega snertifleti milli hópa.
  • Engin blöndun má vera milli hópa ef skipt er upp í hólf vegna fjöldatakmarkana.
  • Börn fædd 2006 og fyrr eru undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.

Áhorfendasvæðin: 

  • Heimilt verður að hafa allt að 500 manns í hólfi í áhorfendasvæðum en allt að 1.500 manns í hólfi þar sem krafist verður hraðprófa (sem má ekki vera eldra en 48 klst.).
  • Skráningarskylda verður tekin upp á ný og skylt að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu, hvort sem hraðpróf eru notuð eða ekki.
  • Grímuskylda gildir í áhorfendasvæðum hvort sem hraðpróf eru notuð eða ekki.
  • Almennt er 1 metra regla í gildi í samfélaginu en þrátt fyrir það verður heimilt að sitja í hverju sæti í áhorfendasvæðum, að því gefnu að önnur skilyrði séu uppfyllt (grímuskylda og skráningarskylda).
  • Börn fædd 2006 og fyrr eru undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur alla til þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum og virða þær reglur um samkomutakmarkanir sem gilda í samfélaginu. 

Reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi þann 10. nóvember.
Frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.