Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Andri Stefánsson ráðinn sem framkvæmdastjóri ÍSÍ

21.12.2021

Andri Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Andri tekur við starfinu af Líneyju Rut Halldórsdóttur sem lét af störfum fyrr á þessu ári.

Andri er 49 ára íþróttafræðingur með meistaragráðu í íþróttastjórnun og hefur starfað hjá ÍSÍ síðan 2002, fyrst sem sviðsstjóri Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍSÍ og síðar sem sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og sem staðgengill framkvæmdastjóra. Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar, jafnt innanlands sem erlendis, en hann hefur meðal annars verið aðalfararstjóri á Ólympíuleikum síðan 2008 og á nú sæti í Tækninefnd Smáþjóðaleika Evrópu fyrir hönd ÍSÍ.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti einróma að ráða Andra í starfið.
Umsækjendur voru alls 29 talsins og var ráðningarferlið í umsjá Hagvangs.