Nýr framkvæmdastjóri hjá AKÍS
Bergur Þorri Benjamínsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) og hefur störf 1. júní nk. Bergur starfaði áður sem aðstoðarmaður þingflokks hjá Alþingi og þar á undan sem starfandi stjórnarformaður Sjálfsbjargar og Sjálfsbjargarheimilisins. Hann hefur lokið diplómanámi á meistarastigi í kennslufræðum frá Háskólanum á Akureyri auk BSc gráðu í viðskiptafræði frá sama háskóla. Bergur hefur setið í stjórn Íslenskrar Getspár síðastliðin fjögur ár.
ÍSÍ býður Berg Þorra velkominn til starfa í Íþróttamiðstöðinni og óskar honum alls góðs í störfum fyrir akstursíþróttahreyfinguna.