Úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ
23.01.2023
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi sínum 19. janúar sl., tillögur fjármálaráðs ÍSÍ um úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ sbr. meðfylgjandi yfirlit yfir úthlutun.
Framlag á fjárlögum 2023 er 99,0 m.kr. sem er sama upphæð og fyrir árið 2022. Áhersla með styrknum er sem fyrr að vinna að því grundvallaráhersluatriði sem sett var í upphafi að hvert sérsamband fengi til framtíðar framlag til að standa undir nauðsynlegri þjónustu við sambandsaðila með rekstri eigin skrifstofu.
Yfirlit yfir úthlutun ríkisstyrks 2023.
Sérsamband: | 2023 |
Akstursíþróttasamband Íslands | 2.750.000 |
Badmintonsamband Íslands | 3.105.000 |
Blaksamband Íslands | 3.105.000 |
Bogfimisamband Íslands | 2.750.000 |
Borðtennissamband Íslands | 2.750.000 |
Dansíþróttasamband Íslands | 3.105.000 |
Fimleikasamband Íslands | 3.330.000 |
Frjálsíþróttasamband Íslands | 3.330.000 |
Glímusamband Íslands | 1.700.000 |
Golfsamband Íslands | 3.330.000 |
Handknattleikssamband Íslands | 3.330.000 |
Hjólreiðasamband Íslands | 2.750.000 |
Hnefaleikasamband Íslands | 2.750.000 |
Íshokkísamband Íslands | 3.105.000 |
Íþróttasamband fatlaðra | 2.000.000 |
Júdósamband Íslands | 2.950.000 |
Karatesamband Íslands | 2.950.000 |
Keilusamband Íslands | 2.950.000 |
Klifursamband Íslands | 2.080.000 |
Knattspyrnusamband Íslands | 3.330.000 |
Kraftlyftingasamband Íslands | 2.950.000 |
Körfuknattleikssamband Íslands | 3.330.000 |
Landssamband hestamannafélaga | 3.330.000 |
Lyftingasamband Íslands | 2.750.000 |
Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands | 2.750.000 |
Siglingasamband Íslands | 2.750.000 |
Skautasamband Íslands | 2.950.000 |
Skíðasamband Íslands | 3.105.000 |
Skotíþróttasamband Íslands | 3.105.000 |
Skylmingasamband Íslands | 2.950.000 |
Sundsamband Íslands | 3.330.000 |
Taekwondosamband Íslands | 2.750.000 |
Tennissamband Íslands | 2.750.000 |
Þríþrautarsamband Íslands | 2.750.000 |