Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Guðlaug Edda fer á Ólympíuleikana í París

27.05.2024

 

Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona, hefur fengið boð um þátttöku á Ólympíuleikunum í París næsta sumar en Alþjóða ólympíunefndin staðfesti svo í dag. Guðlaug Edda er annar Íslendingurinn sem kemst inn á Ólympíuleikana sem haldnir verða í júlí og fram í ágúst og jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt á Ólympíuleikum í þríþraut.

Guðlaugu Eddu hefur gengið mjög vel þeim mótum sem hún hefur tekið þátt í á árinu og meðal annars unnið til verðlauna. Af þeirri ástæðu hefur hún klifið hratt upp heimslistann þrátt fyrir að vera nýlega komin til baka eftir erfið meiðsli. 

Framundan eru spennandi vikur hjá fjölmörgum íþróttamönnum sem enn eiga möguleika á því að vinna sér inn þátttökurétt en vonir standa til að það fjölgi í hópnum á næstunni og fleiri íþróttamenn komist á leikana í sumar fyrir Íslands hönd.

ÍSÍ óskar Guðlaugu Eddu innilega til hamingju og góðs gengis í undirbúningi sínum fyrir leikana.