Sumarfjarnámi í þjálfaramenntun í fullum gangi
Sumarfjarnám 1. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun er í fullum gangi og mun náminu ljúka í ágúst. Um 40 nemendur eru í náminu að þessu sinni og koma þeir frá fjölmörgum íþróttagreinum enda þurfa allir að taka ÍSÍ hluta námsins, svokallaðan almennan þátt í námi íþróttaþjálfara.
Nemendur eru búsettir mjög víða um landið en búsetan er algjört aukaatriði vegna uppbyggingar og eðli námsins sem er allt í fjarnámi. Tveir Teamsfundir eru haldnir í náminu og þar er farið yfir flesta þá þætti sem máli skipta og huga þarf að í náminu. Nemendur hafa auk þess aðgang að kennara námsins á nánast öllum tímum á meðan á náminu stendur.
Haustfjarnám þjálfaramenntunar ÍSÍ verður auglýst í ágúst og mun námið hefjast í september. Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson á stjórnsýslusviði ÍSÍ á vidar@isi.is eða í síma 514-4000/863-1399.