Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.01.2026 - 21.01.2026

RIG ráðstefna

Í tengslum við RIG þá verður ráðstefna um...
12

Vetrarólympíuleikarnir 2034 verða í Salt Lake City

25.07.2024

 

Í gær staðfesti Alþjóðaólympíunefndin að Vetrarólympíuleikarnir árið 2034 verða haldnir í Salt Lake City í Utah í Bandaríkjunum. Vetrarólympíuleikarnir hafa áður verið haldnir í Salt Lake City en það var síðast árið 2002. Leikarnir verða frá 10. til 26. febrúar 2034.

Næstu Vetrarólympíuleikar verða hins vegar haldnir í Milanó og Cortina á Ítalíu árið 2026, en þeir leikar eru í fullum undirbúningi. Hér má finna heimasíðu leikanna sem verða á Ítalíu 2026.

Vetrarólympíuleikarnir árið 2030 munu svo vera í Frakklandi, þ.e. í Nice og Frönsku alpunum.