Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.02.2025 - 22.02.2025

Ársþing SÍL 2025

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
10

Beint streymi frá Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar

08.02.2025

 

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar verður sett sunnudaginn 9. febrúar nk. kl. 15 að íslenskum tíma.

Alpagreinahópurinn kom til Bakuriani  7. febrúar og voru allir í hópnum hressir þrátt fyrir langt ferðalag að heiman. Þau komu sér fyrir á hótelinu og voru ánægð með gistiaðstöðu.  Fóru því næst á létta æfingu og undirbjuggu skíðin sín fyrir næstu æfingu. Í dag, laugardag, koma keppendur og föruneyti úr skíðagöngu og snjóbrettum til Bakuriani og sama dag mæta listskautarnir til Batumi.

Streymt verður frá setningarhátíðinni og einnig frá keppnisviðburðum Vetrarólympíuhátíðarinnar á sjónvarpsrás Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC).

 

Myndir með frétt