Ráðherrafundur samhliða Smáþjóðaleikum
.jpg?proc=400x400)
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra er staddur á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Hann hefur síðustu daga fylgst með íslensku keppendunum í ýmsum íþróttagreinum. Samhliða leikunum hafa verið haldnir fundir ráðherra allra þátttökuþjóðanna og hefur ráðherra sótt þá fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.
Samkvæmt frétt á heimasíðu ráðuneytisins þá var lögð áhersla á að ræða seiglu smáþjóða Evrópu í síbreytilegum heimi og þær áskoranir sem þær mæta. Einnig var rætt um hvernig hægt sé að byggja upp öruggt umhverfi íþrótta, aðgengilegt sem flestum, sem byggir á góðum gildum.
Í ávörpum ráðherra lagði hann áherslu á að þær áskoranir sem mæta íþróttastarfi séu þær sömu og samfélagið í heild glími við. Hann dró jafnframt fram mikilvægi þess að standa vörð um skipulagt íþróttastarf og þau gildi sem íþróttirnar standa fyrir.
Guðmundur Ingi Kristinsson: „Íþróttir eru gríðarlega mikilvægur þáttur til þess einmitt að auka samstöðu, samstarf og samtakamátt í átt til þess samfélags sem við viljum byggja og lifa í. Því gleðst ég að vera kominn hingað til þess að fylgjast með þjóðum okkar etja kappi í heilbrigðri keppni meðal vinaþjóða.“