Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
19

Íslenskir dómarar að störfum á Smáþjóðaleikunum

31.05.2025

Dómarar á Smáþjóðaleikum koma frá öllum smáþjóðunum sem standa að leikunum. Fimm íslenskir dómarar eru að störfum á Smáþjóðaleikunum í Andorra, þau Helgi Jóhannesson karatedómari, Viktoría Gísladóttir og Tómas Gísli Guðjónsson sunddómarar og fimleikadómararnir Ragna Þyrí Ragnarsdóttir og Sigurður Hrafn Pétursson.

Það voru annasamir dagar hjá þeim í vikunni. Sundkeppnin og fimleikakeppnin voru í sömu byggingunni en karatekeppnin er í íþróttamannvirki við landamæri Andorra og Spánar, um hálftíma frá miðbæ Andorra.

Allar þátttökuþjóðirnar leggja til dómara á leikunum. Að sögn Viktoríu gengu dómarastörfin afar vel heilt yfir.

 

Myndir með frétt