Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
14

Þakkarorð forseta ÍSÍ - Vetrar Ólympíuleikarnir og Paralympic í Milano Cortina 2026

13.03.2026

 

Vetrarólympíuleikarnir eru stærsta íþróttahátíð vetraríþrótta og sameina fremsta íþróttafólk víðs vegar að úr heiminum. Einkunnarorð Ólympíuhreyfingarinnar, hraðar, hærra, sterkari – saman, hvetja íþróttafólk til að leggja sig fram af bestu getu, sækjast eftir stöðugum framförum og styrk og minna jafnframt á mikilvægi samstöðu í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi.

Í ár voru leikarnir haldnir í Milano Cortina á Ítalíu og íslenski Ólympíuhópurinn, skipaður fimm keppendum í tólf keppnisgreinum, er kominn heim reynslunni ríkari eftir þátttöku á leikunum.

Á þessum vettvangi sýndi hópurinn að hann ræður vel við þær áskoranir sem fylgja stærsta sviði vetraríþrótta. Þar náðist besti árangur Íslendings í alpagreinum skíðaíþrótta í tvo áratugi og greinilegar framfarir hjá öðrum frá síðustu leikum. Samvinna þjálfara, fararstjóra og alls fylgdarliðs skapaði keppendum góðar aðstæður til að ná sínu besta.

Á sama tíma ríkti jákvæð og samheldin stemning í hópnum sem sást vel á setningarathöfninni þegar tekin voru létt dansspor sem vöktu kátínu áhorfenda. Fatnaður hópsins, unninn í samstarfi við 66° Norður, vakti mikla og jákvæða athygli.

Söguleg heimsókn Jakobínu Valdísar Jakobsdóttur til Milano Cortina vakti ekki síður eftirtekt. Jakobína Valdís keppti fyrst kvenna fyrir hönd Íslands á Vetrarólympíuleikum og voru þeir leikar einmitt í Cortina árið 1956, á sama stað og alpagreinahluti kvenna fór fram nú. Það var því einstakt að sjá hana stíga aftur inn á þennan vettvang svo mörgum árum síðar. Erlendir fjölmiðlar sýndu heimsókninni mikinn áhuga og vildu heyra sögu hennar og gleðjast með henni.

Í kjölfar Vetrarólympíuleikanna hófust Vetrar Paralympics þar sem Ísland hafði tryggt sér í fyrsta sinn þátttökurétt í skíðagöngu kvenna. Arna Sigríður Albertsdóttir keppti fyrir hönd Íslands og er eini íslenski keppandinn sem hefur keppt bæði á Vetrar og Sumar Paralympics, einstakt afrek sem styður við áframhaldandi eflingu íþrótta fatlaðra hér á landi.

Framganga hópsins í keppnunum sjálfum sýnir að við eigum sterkt íþróttafólk með raunhæfa möguleika á að ná langt. Áframhaldandi uppbygging er þó lykilatriði til að keppendur geti tekið næstu skref. Afreksmiðstöð Íslands hefur þegar hafið markvissa vinnu við að efla aðstöðu, styrkja þjálfun og byggja upp faglegt bakland í samstarfi við félög, sérsambönd og afreksíþróttafólkið sjálft.

Í framhaldinu er unnið að heildstæðri stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna, þar sem forgangsröðun, framtíðarsýn og samráð eru leiðarljós. Þetta er þó langhlaup sem krefst þolinmæði og markvissrar vinnu – uppbygging sem gerist ekki á einni nóttu. Markmiðið er að efla innviði íþróttastarfs til framtíðar og ná yfir allt frá afreksstarfi til grasrótar, lýðheilsu og forvarna.

Ég vil þakka íþróttafólkinu okkar, þjálfurum, fulltrúum Skíðasambands Íslands og Íþróttasambandi fatlaðra, starfsfólki ÍSÍ og öllum þeim sem komu að þessu verkefni fyrir fagmannlega og vel unnin störf.

Ég þakka einnig RÚV fyrir vandaða umfjöllun sem gerði landsmönnum kleift að fylgjast vel með framgöngu íslenska hópsins.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ

 

Myndir með frétt