Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
2

Hreyfing, lýðheilsa og Lífshlaupið – grein forseta ÍSÍ birtist í dag

01.04.2026

 

Í dag birtist grein á visir.is eftir forseta ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, þar sem hann fjallar um mikilvægi reglulegrar hreyfingar og það hlutverk sem íþróttahreyfingin gegnir í lýðheilsu þjóðarinnar.

„Íþróttahreyfingin er sameiginlegur vettvangur okkar allra og ein af grunnstoðum forvarna, lýðheilsu og heilbrigði þjóðarinnar.“

Í greininni ræðir Willum sérstaklega um Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem á undanförnum árum hefur náð til fólks á öllum aldri og hvatt til fjölbreyttrar daglegrar hreyfingar, aukinnar samveru og bættrar heilsu landsmanna. Hann bendir á að verkefnið hafi fest sig í sessi sem mikilvægur þáttur í heilsueflingu samfélagsins og sýni vel hvernig sameiginleg þátttaka og hreyfing geta styrkt lýðheilsu.

Greinina má lesa í heild sinni hér á visir.is