Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Lyfjaeftirlit ÍSÍ - My Moment

29.11.2017 09:05

Nýlega var opnuð vefsíða sem ber heitið My-Moment. Um er að ræða átak tileinkað íþróttafólki sem ekki hefur haft rangt við á sínum íþróttaferli og eiga rétt á sínu augnabliki í íþróttaheiminum, hvort sem er á æfingum, í keppni eða á verðlaunapalli. Hreint íþróttafólk vill hreina keppni. Mikilvægt er fyrir íþróttaheiminn að standa vörð um þessi augnablik íþróttafólks og berjast gegn lyfjamisnotkun í íþróttum.

Lyfjaeftirliti ÍSÍ og Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnuninni (WADA) er umhugað um að keppni íþróttafólks sé á jafnréttisgrunni og enginn hafi hag af misnotkun árangursbætandi efna. Á nýloknu heimsmeistaramóti í frjálsíþróttum í London fengu sextán íþróttamenn loksins afhend þau verðlaun sem þeir unnu til, en Alþjóðafrjálsíþróttasambandið hefur reynt að bæta íþróttafólkinu upp fyrir svindlið gegn þeim með því að afhenda þeim verðlaun sín á stórum viðburðum með viðhöfn. Fjölmargir Ólympíumeistarar og heimsmeistarar í frjálsíþróttum hafa misst verðlaun sín undanfarið eftir að komist hefur upp að þeir hafi notað árangursbætandi efni. Geyma má sýni íþróttafólks í tíu ár eftir að þau eru tekin og því hægt að dæma óhreinan íþróttamann allt að tíu árum eftir brot. Með betri tækni í lyfjaeftirliti hefur verið hægt að greina nánar sýni íþróttafólksins.

Ljóst er að baráttan gegn lyfjamisnotkun er ekki verkefni einstakra hópa eða samtaka, ef árangur á að nást þarf samvinnu og samstarf margra einstaklinga og hópa víðs vegar að.

Vefsíða herferðarinnar My-Moment er my-moment.org.

#MyMoment

Rétt er að minna á bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar WADA. Listinn tók gildi 1. janúar 2017 og þar má sjá hvaða efni og aðferðir eru bannaðar bæði í keppni og utan keppni og hvaða efni eru bönnuð í ákveðnum íþróttagreinum. Bannlisti WADA er uppfærður árlega, en á hverju ári fer hann í gegnum ákveðið ferli sem tekur níu mánuði, þar sem allt sem tengist efnum og aðferðum er skoðað. Listinn er síðan birtur þremur mánuðum áður en hann tekur gildi til þess að íþróttafólk geti kynnt sér listann og gert viðeigandi ráðstafanir. Búið er að birta listann sem tekur gildi 1. janúar 2018.

Vefsíða WADA er wada-ama.org.

ÍSÍ hvetur alla sem hlut eiga að máli að kynna sér bannlista WADA 2017 á vefsíðu Lyfjaeftirlits ÍSÍ, lyfjaeftirlit.is.

Myndir með frétt

Til baka