Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

27.03.2025 - 27.03.2025

Ársþing HSK 2025

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
27.03.2025 - 27.03.2025

Ársþing ÍS 2025

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
28

Heiðursforsetar ÍSÍ

Forseti ÍSÍ 1962 - 1980  
Gísli Halldórsson


Gísli Halldórsson var kjörinn Heiðursforseti ÍSÍ árið 1994 eftir 18 ár sem forystumaður íþróttahreyfingarinnar. Hann var formaður Ólympíunefndar Íslands á árunum 1973-1994, en sat í nefndinni frá árinu 1951. Hann var forseti ÍSÍ frá 1962-1980. 

Gísla hlotnuðust marg­ar viður­kenn­ing­ar. Hann hlaut ridd­ara­kross fálka­orðunn­ar 1963 og stór­ridd­ara­kross fálka­orðunn­ar 1974, heiðursorðu Alþjóðaólymp­íu­nefnd­ar­inn­ar 1983 og gull­orðu Heims­sam­bands Ólymp­íu­nefnda 2002 ef nefna á nokkrar.

Forseti ÍSÍ 1991 - 2006  
Ellert B. Schram


Ellert B. Schram var kjörinn Heiðursforseti ÍSÍ á 68. Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2006. Ellert var kjörinn forseti Íþróttasambands Íslands árið 1991 og gegndi því embætti til ársins 2006. Þar á undan var hann formaður Knattspyrnusambands Íslands í 16 ár. Ellert var sæmdur riddarakross Fálkaorðunnar árið 2001 fyrir störf í þágu íþrótta.