Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Hádegisfyrirlestur um leiðir að árangursríkum foreldrasamskiptum

30.10.2014

Miðvikudaginn 5. nóvember verður opinn hádegisfundur í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst hann kl.12:10. Þar mun Margrét Sigmarsdóttir upppeldissálfræðingur fjalla um erfið foreldrasamskipti og leiðir til að gera samskiptin árangursríkari.

Farið verður yfir gagnlegar aðferðir í virkum samskiptum, lausnaleit og tilfinningastjórnun. Sjónarhorn þjálfarans verður í brennidepli.

Þátttakan er ókeypis og öllum heimil. Skráning fer fram á skraning@isi.is

Að lokinni framsögu mun verða opið fyrir spurningar úr sal.