100 dagar eru þangað til Ólympíuleikarnir í Tókýó verða settir, en þeir eru hugsaðir sem hátíð mannkyns, hugrekkis og seiglu. Leikarnir sem hafa vissulega orðið fyrir miklum áhrifum af COVID-19 munu sameina íþróttafólk frá öllum heimshornum og hjálpa til við að sameina heiminn í einum stórum viðburði.Nánar ...10.03.2021
Alþjóðaólympíunefndin (IOC), Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra (IPC), skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó 2020, ríkisstjórn Japans og borgarstjórn Tókýó (TMG) ítrekuðu á Alþjóðlegum barráttudegi kvenna að leitast væri eftir því að Ólympíuleikarnir og Paralympics yrðu leiðandi varðandi jafnrétti kynjanna, bæði innan vallar og utan og að leikarnir ættu að standa fyrir jafnrétti og samfélagi án aðgreiningar. Á leikunum er stefnt að eftirfarandi:
Nánar ...17.02.2021
Nýlega birti skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó 2020 leiðbeiningar fyrir íþróttafólk og fylgdarfólk þeirra. Í leiðbeiningunum má sjá ítarlega áætlun skipulagsnefndarinnar til að tryggja þátttakendum Ólympíuleikanna og Paralympics,Nánar ...23.01.2021
Í dag eru 6 mánuðir þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 23. júlí 2021. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 8. ágúst. Leikarnir áttu að hefjast þann 24. júlí 2020, en þeim var frestað um eitt ár vegna ástandsins í heiminum sökum Covid-19.
Nánar ...15.01.2021
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Japan og Axel Nikulásson, sérstakur ráðgjafi utanríkisráðuneytisins funduðu í morgun með Líneyju Rut Halldórsdóttur framkvæmdastjóra, Andra Stefánssyni sviðsstjóra Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ, í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardalnum.Nánar ...23.11.2020
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur unnið með sérsamböndum ÍSÍ að því að skilgreina Ólympíuhóp keppenda vegna leikanna í Tókýó á næsta ári. Um er að ræða þá aðila sem eru að stefna að þátttöku og vinna markvisst að því að tryggja sér keppnisrétt á leikana sem og þá aðila sem sérsambönd ÍSÍ telji að eigi möguleika á þátttöku m.a. með því að vinna sér þátttökurétt í gegnum úrtökumót.Nánar ...09.10.2020
Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), sendir íþróttafólki um heim allan skilaboð í gær þar sem hann vitnar í herferð IOC #StrongerTogether og hvetur íþróttafólk til þess að vera sjálfsöruggt, bjartsýnt og standa saman. Nánar ...23.09.2020
Í dag eru 10 mánuðir þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 23. júlí 2021. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 8. ágúst.
Nánar ...03.09.2020
Þann 1. september sl. birti skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Los Angeles í Bandaríkjunum merki Ólympíuleikanna 2028 og Paralympics 2028.
Nánar ...01.09.2020
Þó að Ólympíuleikunum hafi verið frestað til næsta árs heldur undirbúningur fyrir leikana áfram. Í gær átti Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ fjarfund með fulltrúum frá Tama City í Japan. Var þar ræddur undirbúningur vegna æfingabúða fyrir íslensku þátttakendurna en Tama City Tokyo verður gestgjafi þeirra í aðdraganda leikanna. Nánar ...