Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

03.02.2018

PyeongChang 2018 - Íslendingar mættir í Ólympíuþorpið

PyeongChang 2018 - Íslendingar mættir í Ólympíuþorpið​Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 eru mættir í Ólympíuþorpið. Sá fyrsti var reyndar aðalfararstjóri íslenska hópsins, Andri Stefánsson, sem kom til Kóreu á miðvikudaginn til að undirbúa vistarverur og komu íslenska hópsins.
Nánar ...
30.11.2017

Vetrarólympíuleikarnir 2026

Vetrarólympíuleikarnir 2026 Fjölmargar borgir hafa sótt um að halda leikana. Sion í Sviss, Innsbruck í Austurríki, Stokkhólmur í Svíþjóð, Calgary í Kanada og Sapporo í Japan eru á meðal þeirra borga sem hafa áhuga á að halda leikana.
Nánar ...
30.10.2017

1000 dagar til Ól í Tókýó 2020

1000 dagar til Ól í Tókýó 2020Næstu Sumarólympíuleikar fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Þann 24. október sl. voru 1000 dagar til leika og af því tilefni birti skipulagsnefnd leikanna listann „10 ástæður til að fara til Tókýó 2020“. 1. Borgin er eins og hönnunarsafn undir berum himni. Háhýsi og óhefðbundin hönnun húsa prýða borgina og áhugavert er að skoða þessa aldagömlu hönnunarhefð Japana. 2. Ólympíuleikvangurinn mun verða byggður að miklu leyti úr viðarefni og hönnunin er einstaklega fallegur japanskur stíll.
Nánar ...
10.08.2017

Ólympíuleikarnir í París 2024

Ólympíuleikarnir í París 2024París og Los Angeles hafa undanfarna mánuði verið að keppast um að halda Ólympíuleikana árið 2024, en nú er orðið ljóst að Ólympíuleikarnir 2024 verða haldnir í París. Ólymp­íu­leik­arn­ir 2028 verða síðan haldn­ir í Los Ang­eles. Alþjóðaólymp­íu­nefnd­in til­kynnti í júní sl. að París og Los Angeles myndu halda þessa tvennu Ólymp­íu­leika í röð. Full­trú­ar beggja borga vildu hins vegar halda leik­ana árið 2024. Alþjóðaólympíunefnd­in gaf full­trúum borg­anna frest fram í september nk. til að kom­ast að sam­komu­lagi um niðurröðun­ina. Að öðrum kosti hefði þurft að kjósa.
Nánar ...
24.07.2017

3 ár til Ólympíuleika í Tókýó

3 ár til Ólympíuleika í TókýóNæstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Tókýó hefur áður haldið leikana, en það var árið 1964. Ísland átti fjóra keppendur á þeim leikum, Guðmund Gíslason og Hrafnhildi Guðmundsdóttur sem kepptu í sundi og Valbjörn Þorláksson og Jón Ólafsson sem kepptu í frjálsíþróttum.
Nánar ...
23.06.2017

Golf og ruðningur áfram á Ólympíuleikum

Golf og ruðningur áfram á Ólympíuleikum Þessa dagana eru allar línur að skýrast hvað varðar Ólympíuleikana í Tókýó 2020. Einnig standa skipuleggjendur Ólympíuleikanna í París og LA í ströngu, því borgirnar keppast um að halda leikana 2024. Útlit er fyrir að allar 28 íþróttagreinarnar sem keppt var í á Ólympíuleikunum í Ríó 2016 verði einnig keppnisgreinar á leikunum í Tókýó 2020 og á leikunum 2024, en nýlega staðfesti framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíunefndarinnar endanlega þá viðburði sem fara munu fram á leikunum í Tókýó. Viðburðadagskráin er töluvert breytt frá fyrri leikum, en þessi nýja dagskrá markar stórt skref í þróun Ólympíuleikanna. Breytingin verður til þess að hlutur kynjanna á leikunum jafnast, íþróttafólki fækkar og þar með minnkar umhverfisspor leikanna.
Nánar ...
03.04.2017

Breytingar á Ól í Tókýó 2020

Breytingar á Ól í Tókýó 2020Næstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar, sem fram fór í Ríó 2016, tók nefndin ákvörðun um að bæta við fimm íþróttagreinum sem keppt verður í í Tókýó. Það eru hafnabolti og mjúkbolti, karate, hjólabretti, íþróttaklifur (sports climbing) og brimbrettabrun.
Nánar ...
06.03.2017

ÍSÍ boðið formlega til þátttöku í PyeongChang 2018

ÍSÍ boðið formlega til þátttöku í PyeongChang 2018Alþjóðaólympíunefndin sendi nýlega öllum ólympíunefndum formlegt boð til þátttöku í XXIII Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018. Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ staðfesti þátttöku Íslands á framkvæmdastjórnarfundi ÍSÍ 2. mars sl.​
Nánar ...
17.02.2017

LA, París eða Búdapest

LA, París eða BúdapestÞrjár borgir keppast um að halda Ólympíuleikana árið 2024. Þær borgir sem sóttu um að halda leikana eru Búdapest í Ungverjalandi, Hamborg í Þýskalandi, Los Angeles í Bandaríkjunum, París í Frakklandi og Róm á Ítalíu. Nú hafa tvær borgir dregið sig úr keppninni um að halda leikana, Hamborg og Róm. 100 meðlimir Alþjóðaólympíunefndarinnar munu kjósa á milli þessarra borga þegar nefndin mun funda í Líma í Perú 13. september 2017.
Nánar ...
14.02.2017

Tókýó 2020 - Verðlaunapeningar úr gömlum símum

Tókýó 2020 - Verðlaunapeningar úr gömlum símumNæstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Skipuleggjendur leikanna leggja mikið upp úr umhverfisvitund og sjálfbærni og vilja hvetja Japani til þess að gera slíkt hið sama. Skipuleggjendur hafa nú brugðið á það ráð að koma af stað söfnun, sem hefst í apríl nk., þar sem almenningur í Japan er beðinn um að gefa gamla farsíma og önnur lítil tæki í söfnunarkassa víðsvegar um Japan. Stefnt er að því að safna átta tonnum af málmi til þess að búa til tvö tonn af gulli, silfri og bronsi. Úr þessum tveimur tonnum verða síðan verðlaunapeningarnir sem afhentir verða verðlaunahöfum á Ólympíuleikunum í Tókýó búnir til.
Nánar ...
07.02.2017

Fundur aðalfararstjóra vegna PyeongChang 2018

Fundur aðalfararstjóra vegna PyeongChang 2018Næstu Vetrarólympíuleikar fara fram í PyeongChang í Suður Kóreu í febrúar 2018.​ Í síðustu viku fór fram fundur aðalfararstjóra Ólympíunefnda og sótti Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, fundinn fyrir hönd ÍSÍ, en framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefndi hann í hlutverk aðalfararstjóra nýverið.
Nánar ...