Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
1

18.09.2020

Ásdís Hjálmsdóttir með netnámskeið

Ásdís Hjálmsdóttir með netnámskeiðÍSÍ bendir á áhugavert netnámskeið, Afreksskólinn, sem spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud sér um. Afreksskólanum er ætlað að hjálpa fólki að hámarka sinn íþróttaárangur.
Nánar ...
18.09.2020

ÍSÍ hvetur fólk til þess að hreyfa sig í Íþróttavikunni

ÍSÍ hvetur fólk til þess að hreyfa sig í ÍþróttavikunniÍþróttavika Evrópu fer fram 23. – 30. september næstkomandi í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir verkefninu hér á landi en markmiðið er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.
Nánar ...
18.09.2020

Síðasti skráningardagur í Þjálfaramenntun ÍSÍ

Síðasti skráningardagur í Þjálfaramenntun ÍSÍHaustfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 21. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
16.09.2020

Göngum í skólann 2020 - Rimaskóli

Göngum í skólann 2020 - RimaskóliÞað er gaman að fá frásagnir og myndir frá því sem fer fram í grunnskólum landsins í tilefni af Göngum í skólann verkefninu. Nýverið sendi Rimaskóli inn stutta frásögn og mynd með: „Bekkurinn 10. JÓ hefur tekið þátt í Göngum í skólann verkefninu frá upphafi. Nemendur ganga til og frá skóla og að auki fer bekkurinn einu sinni í viku í 40 mínútna göngutúr um hverfið með umsjónarkennara. Þessi göngutúr hefur góð áhrif á geðheilsuna því hreyfingin, útiveran og samræðurnar á leiðinni létta lund“.
Nánar ...
16.09.2020

#Breytumleiknum

#BreytumleiknumHandknattleikssamband Íslands (HSÍ) er farið af stað með átakið #Breytumleiknum, sem miðar að því að bæta ímynd kvennahandboltans, fá fleiri ungar stelpur til að byrja að æfa handbolta og stunda íþróttir lengur. Nánar má lesa um átakið á www.breytumleiknum.is
Nánar ...
15.09.2020

Þjálfaramenntun ÍSÍ hefst nk. mánudag

Þjálfaramenntun ÍSÍ hefst nk. mánudagHaustfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 21. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
14.09.2020

Ársþing ÍSS

Ársþing ÍSS21. Skautaþing Skautasambands Íslands (ÍSS) var haldið 13. september sl. Þingið hafði frestast frá því í vor vegna Covid-19 og voru ýtrustu sóttvarnarreglur viðhafðar á þinginu núna. Ný stjórn var kjörin á þinginu. Guðbjört Erlendsdóttir, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér áfram. Nýr formaður var því kjörin Svava Hróðný Jónsdóttir en hún hefur gegnt stöðu varaformanns undanfarin 4 ár. Tvö sæti voru laus í aðalstjórn og voru tveir í framboði, þær María Fortescue og Þóra Sigríður Torfadóttir og voru þær því sjálfkjörnar. Fyrir í aðalstjórn voru Ingibjörg Pálsdóttir og Stefán Hjaltalín. Tveir voru í framboði um tvö sæti í varastjórn og voru því sjálfkjörnir Jóhanna Helga Þorkelsdóttir og Hulda Líf Harðardóttir.
Nánar ...