Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
1

01.09.2020

Fjarfundur með fulltrúum frá Tama City Tokyo

Fjarfundur með fulltrúum frá Tama City TokyoÞó að Ólympíuleikunum hafi verið frestað til næsta árs heldur undirbúningur fyrir leikana áfram. Í gær átti Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ fjarfund með fulltrúum frá Tama City í Japan. Var þar ræddur undirbúningur vegna æfingabúða fyrir íslensku þátttakendurna en Tama City Tokyo verður gestgjafi þeirra í aðdraganda leikanna.
Nánar ...
01.09.2020

Haustfjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ

Haustfjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ​Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 21. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
31.08.2020

Göngum í skólann sett 2. september

Göngum í skólann sett 2. septemberGöngum í skólann 2020 verður sett hátíðlega miðvikudaginn 2. september í Breiðagerðisskóla í Reykjavík. Þetta er í fjórtánda sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Flutt verða stutt ávörp og Lalli töframaður verður með skemmtiatriði. Að því loknu verður verkefnið ræst með viðeigandi hætti þar sem nemendur, starfsfólk Breiðagerðisskóla og gestir munu ganga stuttan hring í nærumhverfi skólans.
Nánar ...
28.08.2020

Ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

Ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttarÍ dag tók gildi auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem heilbrigðisráðuneytið birti 25. ágúst sl. Auglýsingin gildir til 10. september kl. 23:59. Markmið breytinganna sem nú taka gildi er sem fyrr að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19.
Nánar ...
27.08.2020

Kristján endurkjörinn formaður BSÍ

Kristján endurkjörinn formaður BSÍÞing Badmintonsambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær, 26 ágúst 2020. Þetta 50. þing fór í alla staði vel fram og var því stýrt örugglega af þingforsetanum Frímanni Ara Ferdinandssyni.
Nánar ...
23.08.2020

11 mánuðir til Ólympíuleika

11 mánuðir til ÓlympíuleikaÍ dag eru 11 mánuðir þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 23. júlí 2021. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 8. ágúst.
Nánar ...
21.08.2020

Hreinlæti við íþróttaiðkun

Hreinlæti við íþróttaiðkunÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) vill að gefnu tilefni benda á mikilvægi þess að við höldum áfram að sinna hreinlæti við íþróttaiðkun.
Nánar ...
21.08.2020

Íslenskt afreksíþróttafólk á vefsíðu ÍSÍ

Íslenskt afreksíþróttafólk á vefsíðu ÍSÍUmfjöllun um íslenskt afreksíþróttafólk má nú sjá á undirsíðum vefsíðu ÍSÍ. Síðurnar eru hugsaðar sem heimild um okkar besta íþróttafólk þessa stundina, þar sem hægt er að sjá á einum stað umfjöllun um viðkomandi íþróttamann eða íþróttakonu, myndir og áhugaverðar upplýsingar. Verkefnið er lifandi og hugmyndin er að bæta reglulega við íþróttafólki sem fjallað er um. Nú þegar verkefnið er kynnt eru 10 íþróttamenn og 9 íþróttakonur með sína síðu á vefsíðu ÍSÍ. Fljótlega bætast fleiri í hópinn.
Nánar ...
20.08.2020

Samráðsfundurinn „Að lifa með veirunni”

Samráðsfundurinn „Að lifa með veirunni”Heilbrigðisráðherra, í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið, efndi í dag til samráðsfundarins „Að lifa með veirunni“. Fundurinn, sem haldinn var á Hótel Hilton Nordica, var í formi vinnustofu og hann sóttu um 40 lykilaðilar úr ýmsum sviðum samfélagsins.
Nánar ...