Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Hreyfing er góð fyrir heilsuna
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk til að halda áfram að huga vel að almennri hreyfingu. Rannsóknir staðfesta að hreyfing er einn af lykiláhrifaþáttum heilbrigðis á öllum æviskeiðum. Þeir sem hreyfa sig eru líklegri til að vera heilsuhraustari og líða betur andlega, líkamlega og félagslega. Hægt er að hreyfa sig úti í náttúrunni og ekki í náinni snertingu við annað fólk. Dagleg hreyfing fullorðins fólks ætti að vera a.m.k. 30 mínútur á dag skv. ráðleggingum frá Embætti landlæknis og börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag. Fullorðnir eru mikilvæg fyrirmynd sem getur haft mikið að segja um hversu mikið börn og ungt fólk hreyfir sig.
Kveikt á Ólympíukyndlinum
Bæklingur um trans börn
Út er kominn bæklingur um íþróttaiðkun trans barna, en á síðustu árum hefur þó nokkur fjöldi barna á öllum aldri verið að stíga fram sem trans. Mikilvægt er að huga vel að aðgengi þessa hóps að íþróttastarfi, taka vel á móti þeim og huga vel að þeirra sérstöðu. Bæklingurinn er hugsaður til upplýsinga fyrir foreldra, þjálfara og aðra sem að íþróttastarfinu koma. Bæklingurinn var unnin m.a. í samstarfi við Samtökin 78, Trans Ísland og Trans vini. Bæklingurinn er fyrst og fremst leiðbeinandi og tekur til barna að 12 ára aldri eða fyrir kynþroska. Bæklinginn má nálgast í prentaðri útgáfu á skrifstofu ÍSÍ og í rafrænni útgáfu á vefsíðu ÍSÍ.
Fundur IOC og Ólympíunefnda Evrópu
Hvað gerir íslenskt afreksíþróttafólk í stöðunni?
Á Instagram síðu ÍSÍ, @isiiceland, hefur sjónum verið beint að íslensku afreksíþróttafólki undanfarna mánuði. Fólk hefur fengið innsýn í daglegt líf afreksíþróttafólks sem margt hvert keppir um að komast á Ólympíuleikana í Tókýó í júlí á þessu ári.
Göngu- og hjólastígakort
Á vefsíðu Hjólað í vinnuna, verkefnis á vegum ÍSÍ sem fer fram í maí ár hvert, má sjá ýmsan fróðleik.
Sports in Iceland and Covid-19
The Directorate of Health, the Chief Epidemiologist and the Civil Protection Department has stated to ÍSÍ that due to difficulty organizing work in preschools and elementary schools, in accordance with the rules currently in force regarding a four week ban on public events taking effect 16th of March, that guidelines for youth participation in sports have not been completed. Thus, there will be disruption in sports activities over the next few days until sports clubs, the school community and municipalities have come up with solutions that will apply for the next four weeks.
Starfsskýrslur ÍSÍ og UMFÍ
Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar í samfélaginu þessa stundina og þá ekki síst samkomubannsins sem hamlar því að einingar í íþróttahreyfingunni ljúki sínum aðalfundum og ársþingum, þá hefur ÍSÍ og UMFÍ ákveðið að framlengja frest til að skila inn starfsskýrslum í Felix til 1. júní nk.
Valdís í 7. sæti í Suður-Afríku
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur, stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó í júlí nk. Valdís keppir út um allan heim um þessar mundir og nú síðast í Suður-Afríku sl. helgi þar sem hún náði sínum besta árangri á árinu. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og var Valdís í baráttu um sigurinn en endaði í 7.-13. sæti mótsins á tveimur höggum undir pari. Alice Hewson frá Englandi sigraði mótið á fimm höggum undir pari. Er þetta í fjórða skipti sem Valdís Þóra er á meðal tíu efstu kylfinga á Evrópumótaröðinni.
Guðlaug Edda nælir í dýrmæt Ólympíustig
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarmeistari, stefnir á að taka þátt í ólympískri þríþraut á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020. Í ólympískri þríþraut eru syntir 1500 metrar, 40 kílómetrar hjólaðir og 10 kílómetrar hlaupnir.
Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag
Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag er facebooksíða þar sem ÍSÍ mun setja inn fjölbreytta hreyfingu, fróðleik, myndir, myndbönd og almenna skemmtun sem mun nýtast öllum þeim sem áhuga hafa í þær 4 vikur sem samkomubannið er við líði.
Nú er tíminn til að skrá hreyfingu sína
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk til að huga vel að almennri hreyfingu í þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna Covid-19. ÍSÍ bendir á verkefnið Lífshlaupið sem er í gangi allt árið, en það er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa og allra landsmanna.