Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
100 dagar til Evrópuleika í Baku
Fyrstu Evrópuleikarnir fara fram í Baku í Azerbaijan dagana 12. til 28. júní 2015. Í dag eru 100 dagar til leika og haldið verður upp á það um alla Evrópu. Evrópskar ólympíunefndir vekja athygli á deginum hver með sínum hætti. Staðan er misjöfn milli greina hvort búið sé að velja þátttakendur eða ekki.
Reinharð endurkjörinn formaður KAÍ
28. Karateþing var haldið laugardaginn 28. febrúar síðastliðinn. Svo skemmtilega vildi til að það bar upp á 30 ára afmæli sambandsins sem var stofnað 28. febrúar 1985.
Ekki var um átakaþing að ræða en mest umræða fór í Afreksstefnu sambandsins og um undirbúning og framkvæmd á Norðurlandameistaramótinu í karate sem verður haldið hér á landi laugardaginn 11. apríl næstkomandi.Góð mæting á ársþingi UMSK
91. ársþing UMSK var haldið í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ 26. febrúar sl. Valdimar Leó Friðriksson var endurkjörinn formaður sambandsins. Vel var mætt á þingið en sjötíu fulltrúar mættu frá sautján félögum en rétt til setu á þinginu hafa fulltrúar aðildarfélaganna á sambandssvæði UMSK sem nær yfir Kópavog, Garðabæ, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ og Kjós.. Tvö ný félög, Lyftingafélag Garðabæjar og Lyftingafélag Kópavogs, voru tekin inn í sambandið. Jakob Jóhann og Anna Margrét til Ólympíu
Ertu nokkuð að gleyma þér?
Í dag lokar skráningarkerfi sjálfboðaliða á Smáþjóðaleikum 2015 formlega. ÍSÍ hvetur þá sem ekki hafa skráð sig til að skrá sig í dag á heimasíðu leikanna. www.iceland2015.isNý afreksstefna SÍL samþykkt á ársþingi sambandsins
Ársþing Siglingasambands Íslands var haldið laugardaginn 21.febrúar síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingforseti var Gísli Árni Eggertsson frá ÍTR og fyrrum stjórnarmaður SÍL. Mæting á þingið var heldur slök en fyrir þinginu lá meðal annars að samþykkja nýja afreksstefnu fyrir siglingaíþróttina. Var hún samþykkt með breytingum en einnig var samþykkt mótaskrá fyrir árið 2015 og dagsetningar fyrir árið 2016. Geir endurkjörinn formaður KSÍ
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fór fram á Hótel Hilton Nordica laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn. Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður sambandsins til næstu tveggja ára, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, en Geir fékk að þessu sinni mótframboð frá Jónasi Ými Jónassyni. Engar breytingar urðu á stjórn sambandsins að þessu sinni. Lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 heitir Blossi
Í dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni var lukkudýri Smáþjóðaleikanna gefið nafnið Blossi. ÍSÍ efndi til nafnasamkeppni í janúar um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleika 2015. Þátttökurétt áttu allir 4.—7. bekkir í grunnskólum landsins. 100 dagar til stefnu
Í dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni eru tvær nýjar myndir úr myndaröðinni „Náttúrulegur kraftur“ birtar til viðbótar við þær níu sem nú þegar hafa verið birtar.
Gunnar endurkjörinn formaður ÍS
Þing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS) var haldið í golfskála Golfklúbbs Vatnsleysustrandar í gærkvöldi. Fyrir þinginu lá hefðbundin dagskrá og að henni lokinni fóru fulltrúar allra aðildarfélaga ÍS stuttlega yfir starfsemi sinna félaga á nýliðnu ári. Gunnar Jóhannesson var endurkjörinn formaður ÍS. Friðrik Einarsson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.Hnefaleikafélag Reykjaness fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Hnefaleikafélag Reykjaness fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn á móti sem félagið hélt í Keflavík þennan dag. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins Birni Snævari Björnssyni viðurkenninguna ásamt fána fyrirmyndarfélaga. Á myndinni eru frá vinstri þau Margrét Guðrún Sævarsdóttir hnefaleikamaður Reykjanesbæjar 2014, Björn Snævar Björnsson og Sigríður Jónsdóttir.Heiðurshöll ÍSÍ
Ásgeir Sigurvinsson og Pétur Guðmundsson voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á athöfninni Íþróttamaður ársins 2014 í janúar sl. Nú er hægt að sjá myndbönd um þeirra feril á heimasíðu ÍSÍ.