Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
GSSE 2017: Íslenskir þátttakendur í Peak
Á miðvikudaginn sl. fór fram fundur blaklandsliða sem fara til San Marínó. Farið var yfir þau atriði sem huga þarf að hvað varðar þátttöku Íslands á leikunum. Þátttakendur fengu einnig sín föt afhent, en íslenskir þátttakendur munu klæðast fötum frá merkinu Peak á meðan á leikunum stendur.
Aukin fagmennska í hópíþróttum
Fimmtudaginn 18. maí bauð ÍSÍ upp á hádegisfund þar sem dr. Viðar Halldórsson kynnti rannsókn sína á því hvers vegna íslensk A-landslið í hópíþróttum hafa náð jafn langt á alþjóðlegum vettvangi sl. ár og raun ber vitni. Niðurstöður má helst skýra með menningarlegum sérkennum annars vegar og aukinni fagmennsku hins vegar.Sumarfjarnám ÍSÍ
Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 12. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.
Breytingar hjá HSÍ
Þær breytingar urðu á starfsliði Handknattleikssambands Íslands 1. maí síðastliðinn að Einar Þorvarðarson hætti sem framkvæmdastjóri sambandsins og Róbert Geir Gíslason, sem starfað hefur á skrifstofu HSÍ frá árinu 2003, tók við starfinu. Alþjóðaólympíunefndin í auknu samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar
Nú hafa Alþjóðaólympíunefndin (IOC) og Sameinuðu þjóðirnar (UN) styrkt enn betur samstarf sitt á sviði íþróttamála. António Guterres, nýr framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Thomas Bach, forseti IOC, lögðu til aukið samstarf á fundi í janúar sl.
Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin víðsvegar um álfuna vikuna 23. – 30. september nk. og verður Ísland engin undantekning. Íslenska íþróttaundrið
Fimmtudaginn 18. maí mun Dr. Viðar Halldórsson vera með hádegisfund í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og ber fyrirlesturinn heitið Íslenska íþróttaundrið. Fyrirlesturinn hefst kl.12 og er gert ráð fyrir að hann standi í eina klukkustund með umræðum.
Fundur flokksstjóra vegna Smáþjóðaleika 2017
Nú er í mörg horn að líta í lokaundirbúningi íslenska hópsins fyrir Smáþjóðaleikana 2017, sem fara fram í San Marínó frá 29. maí til 3. júní. Tæplega 200 manns eru í íslenska hópnum, þar af 136 keppendur. Af keppendum eru 73 karlar og 63 konur.
Hjólað í vinnuna hálfnað
Ávarp forseta við setningu 73. Íþróttaþings
Það er mikið að gerast í íslenskri íþróttahreyfingu og margt hefur gengið á síðan við síðast héldum Íþróttaþing, vorið 2015.
Í júní 2015 tókst ÍSÍ á við stærsta verkefni sitt frá upphafi er við héldum Smáþjóðaleikana hér á Íslandi. Veður var kalt en bjart og þótti mönnum sérstakt að horfa á kappklætt fólk keppa í strandblaki í 3ja stiga hita og hávaðaroki en sól. Að sjálfsögðu unnu Íslendingar gull í þeirri keppni.
Skipan dómstóla ÍSÍ
Embættismenn stjórnar ÍSÍ
Fyrsti fundur nýkjörinnar framkvæmdastjórnar ÍSÍ fór fram fimmtudaginn 11. maí síðastliðinn. Framkvæmdastjórnin skipti með sér verkum og skipað var í ráð og nefndir ÍSÍ.
Embættismenn stjórnar eru sem hér segir: Sigríður Jónsdóttir varaforseti, Hafsteinn Pálsson ritari og Gunnar Bragason gjaldkeri.
Yfirlit yfir ráð og nefndir ÍSÍ er að finna á heimasíðu ÍSÍ eða með því að smella hér.