Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25

19.09.2019

Ólympíuhlaup ÍSÍ sett á Ísafirði

Ólympíuhlaup ÍSÍ sett á ÍsafirðiÓlympíuhlaup ÍSÍ 2019 var sett á Ísafirði í gær með aðkomu fjögurra grunnskóla á svæðinu, Grunnskóla Ísafjarðar, Grunnskólans í Bolungarvík, í Súðavík og á Suðureyri. Það var HSV sem aðstoðaði við að koma þessu í kring en um 700 börn og kennarar af svæðinu tóku þátt. Blossi lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 var á staðnum og sá um upphitun fyrir hlaupið og vakti að venju mikla lukku.
Nánar ...
19.09.2019

Bannlisti WADA

Bannlisti WADABannlisti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA Prohibited List) er endurskoðaður á hverju ári og tók ný útgáfa gildi 1. janúar sl. Bannlisti WADA gildir innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Listann í heild sinni má nálgast með því að smella á hlekk hér fyrir neðan og einnig er samantekt (á ensku) á helstu breytingum og viðbætum frá fyrra ári.
Nánar ...
18.09.2019

Vetrarólympíuleikar ungmenna í Lausanne

Vetrarólympíuleikar ungmenna í Lausanne Þriðju Vetrarólympíuleikar ungmenna (YOWG) fara fram í Lausanne í Sviss frá 9. - 22. janúar 2020. Þann 17. september sl. fór fram hefðbundin athöfn á Panathenaic leikvanginum í Aþenu í Grikklandi, en þá var kveikt á kyndli Ólympíuleika ungmenna. Markar þetta upphafið að kyndilhlaupi sem hefst þann 21. september nk. og lýkur eftir 110 daga á Ólympíuleikvanginum í Sviss þegar setningarhátíðin fer fram. Kyndilhlaupið er hefðbundinn viðburður fyrir leika á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) og er athöfnin á Panathenaic leikvanginum mjög táknrænn viðburður fyrir ólympísk gildi. Skipuleggjendur YOWG í Lausanne hafa í nógu að snúast fram að leikum. Nú munu fara fram viðburðir um allt Sviss fram að leikum þar sem ung fólk er hvatt til þess að hreyfa sig. Íslendingar munu eiga fulltrúa á leikunum, en hverjir það eru kemur í ljós á næstu vikum.
Nánar ...
18.09.2019

Aðalfundur Lyfjaeftirlits Íslands

Aðalfundur Lyfjaeftirlits ÍslandsAðalfundur Lyfjaeftirlits Íslands (LÍ) var haldinn í Íþróttamiðstöðinni Í Laugardal þann 20. ágúst sl. Formaður stjórnar fór meðal annars yfir ársskýrslu stofnunarinnar, skipan í nefndir og breytingar á fyrirkomulagi nefndarstarfa. Ársreikningur fyrir árið 2018 og rekstaráætlun fyrir 2019 voru samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Einnig var fjallað um samstarf við líkamsræktarstöðvar og þjónustuaðila lýðheilsu í landinu, sem er ekki síst ástæða þess að Lyfjaeftirlitið hefur orðið meira sýnilegt í samfélaginu. Formaðurinn kallaði einnig eftir öflugra samstarfi við aðra aðila er tengjast málaflokknum.
Nánar ...
16.09.2019

Þjálfarastyrkir ÍSÍ

Þjálfarastyrkir ÍSÍStjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Nánar ...
16.09.2019

Göngum í skólann verkefnið

Göngum í skólann verkefniðGöngum í skólann er enn í fullum gangi. Tilvalið er að hvetja börnin til að velja sér virkan ferðamáta í skólann strax í byrjun skólaárs. Mikilvægt er að fara vel yfir umferðarreglur með börnunum en hægt er að fara á umferðarvefinn www.umferd.is sem er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskóla, kennara og foreldra. Vefurinn er til þess fallinn að auka áhuga á umferðaröryggi í skólastarfinu. Þar að auki er mikilvægt að ökumenn gæti sérstakrar varúðar í nálægð við skóla- og íþróttasvæði.
Nánar ...
12.09.2019

Ekki harka af þér höfuðhögg!

Ekki harka af þér höfuðhögg!Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar. Um það eru mörg dæmi í knattspyrnu og fleiri íþróttum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands hafa í samstarfi unnið fræðslumyndbönd tengd þessu mikilvæga viðfangsefni. Annars vegar er um að ræða grafísk myndbönd með mikilvægum upplýsingum, m.a. um fyrstu viðbrögð, og hins vegar viðtalsmyndbönd þar sem knattspyrnufólkið Heiðrún Sara Guðmundsdóttir og Elfar Árni Aðalsteinsson deila reynslusögum.
Nánar ...
11.09.2019

Ólympíufari og afreksíþróttakona í framkvæmdastjórn ÍSÍ

Ólympíufari og afreksíþróttakona í framkvæmdastjórn ÍSÍDominiqua Alma Belányi og Þórey Edda Elísdóttir stunduðu báðar íþróttir af krafti frá unga aldri. Þórey Edda keppti þrívegis á Ólympíuleikum og Dominiqua á Evrópu- og heimsmeistaramótum. Nú sitja þær í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Í nýjasta blaði ÍSÍ frétta er viðtal við þær og má lesa blaðið hér.
Nánar ...
10.09.2019

Göngum í skólann - Saga frá skóla

Göngum í skólann - Saga frá skólaGöngum í skólann 2019 fer vel af stað en alls 71 skóli er skráður til þátttöku í verkefninu í ár. Víkurskóli sendi nýlega inn frásögn og myndir á vefsíðu verkefnisins www.gongumiskolann.is, en þátttökuskólar eru hvattir til þess að senda myndir, frásagnir og/eða myndbönd af verkefninu.
Nánar ...
10.09.2019

Verðlaunapeningar í Tókýó 2020

Verðlaunapeningar í Tókýó 2020Næstu Ólympíuleikar fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Tókýó er nú í annað sinn gestgjafi leikanna, en leikarnir fóru fram í borginni árið 1964. 11.000 íþróttamenn frá 200 þjóðum munu keppa í 33 íþróttagreinum á Ólympíuleikunum og verða 339 gullverðlaun veitt að þessu sinni. Nýlega voru verðlaunapeningar Ólympíuleikanna 2020 kynntir og fylgir mynd af þeim með fréttinni.
Nánar ...